Körfubolti

Ívar búinn að velja sextán stelpur í æfingahópinn - fjórir nýliðar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðbjörg Sverrisdóttir, yngri systir fyrirliðans Helenu Sverrisdóttur, er í 16 manna hópnum. Hún er ein af fjórum nýliðum í æfingahópnum.
Guðbjörg Sverrisdóttir, yngri systir fyrirliðans Helenu Sverrisdóttur, er í 16 manna hópnum. Hún er ein af fjórum nýliðum í æfingahópnum. Vísir/Daníel
Ívar Ásgrímsson er búinn að skera niður æfingahóp íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta en um helgina var hann með 25 leikmenn á æfingum.

Um helgina æfðu 25 leikmenn en upprunalega voru 26 valdar í æfingahóp. Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir og Eva Margrét Kristjánsdóttir Snæfelli og Íris Sverrisdóttir, Haukum, gáfu ekki kost á sér í liðið og inn í æfingahópinn komu Jóhanna Björk Sveinsdóttir, Haukum, og Guðlaug Björt Júlíusdóttir, Njarðvík.

Úr upprunalega æfingahópnum lá fyrir að tveir leikmenn gætu ekki tekið þátt í leikjum A-landsliðsins en þær Sara Rún Hinriksdóttir og Sandra Lind Þrastardóttir, báðar frá Keflavík, munu taka þátt í keppni U18-ára landsliðsins í sumar sem keppir á sama tíma og A-landsliðið.

Ívar valdi sextán leikmenn en framundan eru æfingaleikir við Dani hér heima auk C-keppni Evrópukeppninnar sem fer fram í Austurríki.

16 manna æfingahópurinn eftir helgina er skipaður eftirtöldum leikmönnum: (landsleikir fyrir aftan)

Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík 23 A-landsleikir

Guðbjörg Sverrisdóttir, Valur Nýliði

Gunnhildur Gunnarsdóttir, Haukar 7

Helena Sverrisdóttir, DVTK Miskolc 45

Helga Hjördís Björgvinsdóttir, Snæfell Nýliði

Hildur Björg Kjartansdóttir, Snæfell 3

Hildur Sigurðardóttir, Snæfell 73

Ingibjörg Jakobsdóttir, Grindavík 12

Jóhanna Björk Sveinsdóttir, Haukar 2

Kristrún Sigurjónsdóttir, Valur 28

Margrét Rósa Hálfdanardóttir, Haukar Nýliði

María Ben Erlingsdóttir, Grindavík 37

Marín Laufey Davíðsdóttir, Hamar Nýliði

Pálína Gunnlaugsdóttir, Grindavík 22

Ragna Margrét Brynjarsdóttir, Valur 17

Sigrún Sjöfn Ámundardóttir, KR 24




Fleiri fréttir

Sjá meira


×