Golf

Rory McIlroy í sérflokki á fyrsta hring á Memorial

Það virðist fátt stöðva Rory McIlroy þessa dagana.
Það virðist fátt stöðva Rory McIlroy þessa dagana. AP/Getty
Rory McIlroy fór á kostum á fyrsta hring á Memorial mótinu sem hófst í dag en Norður-Írinn ungi lék á 63 höggum eða níu höggum undir pari. Hann leiðir mótið með þremur höggum og virðist McIlroy vera í banastuði þessa dagana en hann sigraði á BMW PGA meistaramótinu sem kláraðist í síðustu viku.

Þrír kylfingar koma á eftir McIlroy jafnir í öðru sæti á sex höggum undir pari en það eru þeir Chris Kirk, Paul Casey og Masters meistarinn Bubba Watson.

Memorial mótið er það mót á PGA-mótaröðinni Jack Nicklaus heldur ár hvert en hann hannaði einnig hinn glæsilega Muirfield völl sem leikið er á um helgina.

Phil Mickelson átti ansi áhugaverðan hring í dag en eftir 15 holur var hann á fimm höggum undir pari eftir að hafa fengið tíu pör og fimm fugla. Hann endaði hringinn þó með því að fá skolla á 16. holu og tvöfaldan skolla á síðustu tvær holurnar sem þýddi að hann datt niður á parið.

Ungstirnið Jordan Spieth var með Mickelson í holli en hann hóf mótið ágætlega og lék á 69 höggum eða þremur undir pari. Besti kylfingur heims, Adam Scott, hóf einnig mótið með hring upp á 69 högg sem hefði getað verið mun betri ef pútterinn hefði verið heitari hjá honum.

Allt stefnir því í spennandi keppni um helgina en annar hringur verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 18:30 á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×