Körfubolti

Paul George með í kvöld

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
George í baráttunni við Wade
George í baráttunni við Wade vísir/getty
Paul George skærasta stjarna Indiana Pacers verður með liðinu í kvöld í þriðja leik liðsins og Miami Heat í úrslitum austurstrandar NBA körfuboltans.

George fékk heilahristing í öðrum leik liðanna á aðfaranótt miðvikudagsins en hefur fengið grænt ljós frá deildinni að hann megi taka þátt í leiknum.

Læknateymi Pacers mun þó fylgjast vel með George í upphitun fyrir leikinn en ekki er gert ráð fyrir neinum vandræðum þar sem hann er orðinn einkennalaus.

George sagði í gær að hann væri búinn að vera einkennalaus í tvo daga og að hann væri klár í slaginn.

George hefur skoraði 21,5 stig að meðaltali í úrslitakeppninni, tekið 8,1 frákast og gefið 4,1 stoðsendingu.

Staðan í einvíginu er 1-1 eftir tvo fyrstu leikina í Indiana. Leikurinn í kvöld verður í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport og hefst leikurinn upp úr klukkan hálf eitt eftir miðnætti.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×