Fótbolti

Grasið lifði af leikinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðjón Baldvinsson í leiknum á Laugardalsvelli í gær.
Guðjón Baldvinsson í leiknum á Laugardalsvelli í gær. Vísir/Andri Marinó
„Völlurinn lítur mun betur út en við þorðum að vona,“ sagði Kristinn V. Jóhannssson, vallarstjóri Laugardalsvallar.

Aðeins 40 dagar eru liðnir frá því að sáð var fyrir nýju grasi á Laugardalsvelli og fyrstu grasstráin létu sjá sig fyrir 28 dögum.

Í gær fór svo fram landsleikur í knattspyrnu á vellinum þegar Ísland vann 1-0 sigur á Eistlandi í vináttulandsleik.

„Við erum að laga hann núna og vissulega er eitthvað af sárum. Völlurinn er ekki fullkominn,“ sagði Kristinn í samtali við Vísi í dag.

„Við vorum búnir að búa okkur undir mikið verra. Völlurinn kemur að okkar mati ágætleglega út eftir leikinn.“

Áætlað er að Fram taki á móti Keflavík í Pepsi-deild karla á þriðjudag og að Ísland mæti Möltu í undankeppni HM kvenna þann 19. júní.

„Það er ekki búið að taka ákvörðun um framhaldið en það verður væntanlega gert í dag. Ég get ekki lofað neinu eins og málin standa nú.“

Mikill og þykkur klaki var á vellinum í vetur sem olli því að grasið skemmdist, eins og svo víðar á höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu. Völlurinn var því moldarflag fyrir stuttum tíma og segir Kristinn að hann muni seint gleyma þessari reynslu.

„Þessi leikur og leikurinn gegn Króatíu í haust voru afar sérstakir,“ sagði Kristinn en aðeins fáeinum mínútum eftir leiknum gegn Króatíu þann 15. nóvember byrjaði að snjóa, eins og lesa má um hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Laugardalsvöllur nánast ónýtur

Nú þykir ólíklegt, og nánast vonlaust, að Fram leiki heimaleiki sína í Pepsí–deildinni á Laugardalsvelli í maí. Fari svo þurfa knattspyrnumenn í Fram að leita annnað.

Laugardalsvöllur lítur illa út

Ólíkegt er að Fram spili á Laugardalsvelli í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar þann 4. maí næstkomandi.

Vellirnir að koma misvel undan vetri

Vallarstjórar liða í Pepsi-deild karla biðja nú til veðurguðsins að hann gefi góðan apríl. Ef tíðin lagast ekki á næstu vikum er ljóst að ástanda margra valla í deildinni verður slæmt þegar flautað verður til leiks í byrjun maí. Menn eru misbjartsýnir á f

Þarf að lífga grasið í Laugardalnum við

Þjóðarleikvangurinn mjög illa farinn eftir erfiðan vetur en unnið er í honum.Óvíst hvort Framarar fái að spila heimaleik á Laugardalsvelli í maímánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×