Fótbolti

Guðlaugur Victor inn í landsliðshópinn

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Guðlaugur Victor
Guðlaugur Victor vísir/getty
Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck landsliðsþjálfarar Íslands í fótbolta hafa kallað Guðlaug Victor Pálsson inn í landsliðshóp Íslands fyrir leikinn gegn Eistlandi á miðvikudaginn.

Guðlaugur Victor sem leikur með NEC Nijmegen í Hollandi kemur inn í hópinn í stað Kristjáns Gauta Emilssonar leikmanns FH sem er meiddur.

Guðlaugur Victor hefur áður verið valinn í landsliðið en hefur ekki enn spilað sinn fyrsta landsleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×