Íslenski boltinn

Grindavík áfram í fallsæti

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Það gengur ekkert hjá Milan Stefáni og lærisveinum hans.
Það gengur ekkert hjá Milan Stefáni og lærisveinum hans. vísir/daníel
BÍ/Bolungarvík og Grindavík skildu jöfn, 1-1, í 1. deild karla í fótbolta í kvöld. Daníel Leó Óttarsson kom gestunum yfir á 20. mínútu en Nikulás Jónsson jafnaði metin fyrir Djúpmenn á 61. mínútu.

Eftir leikinn er Grindavík áfram í fallsæti, því ellefta, með aðeins fimm stig eftir sjö umferðir.

BÍ/Bolungarvík er sæti ofar með sjö stig en Tindastóll er á botninum án stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×