Körfubolti

LeBron gæti fengið "Popovich“ meðhöndlun hjá David Blatt

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Skytturnar þrjár hjá Cavaliers
Skytturnar þrjár hjá Cavaliers vísir/afp
David Blatt þjálfari Cleveland Cavaliers í NBA körfuboltanum í Bandaríkjunum segir koma til greina að hvíla LeBron James reglulega á keppnistímabilinu sem hefst síðustu vikuna í október.

Undirbúningstímabilið er ný hafið hjá liðunum í NBA og hefur LeBron sem gekk til liðs við Cavaliers að nýju í sumar átt við bakmeiðsli að stríða.

LeBron fékk hvíld frá æfingum í gær og sagði Blatt að hann væri opinn fyrir þeirri hugmynd að hvíla stórstjörnu sína reglulega á tímabilinu til að tryggja að hann verði í sínu besta formi þegar í úrslitakeppnina er komið.

Blatt gerði lítið úr meiðslum LeBron og benti á að aðrir af reyndari leikmönnum liðsins, Mike Miller, Anderson Varejao og Shawn Marion, hafi einnig fengið hvíld frá álaginu sem fylgir fyrstu æfingum undirbúningstímabilsins.

„Þetta hefur ekki verið skipulagt á þessum tímapunkti. Við höfum ekki farið yfir það hvaða leikjum eða hvaða æfingum hann mun sleppa. Ef þetta gerist mun það snúast um þörf,“ sagði Blatt um hugsanlegar hvíldi LeBon James.

Cavaliers mætir Maccabi Tel-Aviv, fyrrum lærisveinum Blatt, í fyrsta æfingaleik sínum á morgun sunnudag og er talið að LeBron verði með í leiknum.

LeBron hefur leikið 842 af 886 leikjum liða sinna í deildarkeppni NBA á 11 ára ferli sínum í deildinni en hann verður þrítugur í desember og líkaminn mun ekki þola þetta mikla álag til lengdar.

„Ég hef tekið eftir því hvað Pop (Gregg Popovich þjálfari San Antonio Spurs) gerir því hann gerir þetta vel,“ sagði Blatt.

„Leikmenn eru hér til að spila og það er okkar starf að sjá til þess að þeir séu tilbúnir og að halda þeim heilum. Stundum þarftu að vita hvenær þú átt að hvíla leikmenn án þess að það komi niður á liðinu.“

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×