Körfubolti

Dregið í riðla á EM í körfu í París í desember

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Logi Gunnarsson og félagar verða vonandi svona ánægðir með riðilinn á EM.
Logi Gunnarsson og félagar verða vonandi svona ánægðir með riðilinn á EM. Vísir/Anton
FIBA Europe tilkynnti í dag hvenær verður dregið í riðla vegna Evrópumótsins í körfubolta á næsta ári en athöfnin fer fram mánudaginn 8. desember næstkomandi og verður haldin í París í Frakklandi.

Íslenska landsliðið í körfubolta tryggði sér eins og kunnugt þátttökurétt á EM í fyrsta sinn í ágúst og það bíða því margir spenntir eftir því hvar riðill Íslands muni fara fram og hvaða þjóðir verða með Íslandi í riðli.

Riðlakeppnin fer fram í fjórum löndum og íslenska landsliðið gæti spilað í Frakklandi, Króatíu, Þýskalandi eða Lettlandi.

Riðlakeppnin fer fram dagana 5.-12. september 2015 og úrslitaleikurinn verður 20. september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×