Körfubolti

LeBron frábær í sigri Cleveland | Myndbönd

Anton Ingi Leifsson skrifar
James var góður í nótt.
James var góður í nótt. Vísir/Getty
Sex leikir fóru fram í NBA körfuboltanum í nótt þar sem hæst bar leikur Cleveland og Chicago Bulls. LeBron James fór á kostum í sigri Cleveland.

James sneri, eins og flestir vita, heim til Cleveland í sumar og spilaði langt undir væntingum í fyrsta leik vetrarins. Hann var hins vegar frábær í sigri Cleveland í nótt, en LeBron skoraði 36 stig í sex stiga sigri Cleveland, 114-108.

Kyrie Irving átti einnig afar góðan leik fyrir Cleveland, en hann skoraði 23 stig. Kirk Hinrich og Derrick Rose voru stigahæstir hjá gestunum í Chicago með 20 stig.

Það var svo borgaraslagur í Los Angeles þar sem Clippers og Lakers mættust. Til að gera langa sögu stutta unnu Clippers-menn sjö stiga sigur, 118-111. Blake Griffin var frábær og skoraði 39 stig, en Jordan Hill var stigahæstur hjá Lakers með 23 stig. Kobe Bryant skoraði 21 stig.

Rudy Gay var aðalmaðurinn í sigri Sacramento á Portland, en hann gerði sér lítið fyrir og skoraði 40 stig.

Öll úrslit kvöldsins:

Memphis - Indiana 97-89

Cleveland - Chicago 114-108

Philadelphia - Milwaukee 81-93

San Antonio - Phoenix 89-94

Portland - Sacramento 94-103

Los Angeles Clippers - Los Angeles Lakers 118-11

Magnaður Rudy: Það helsta úr borgarslagnum: Það helsta frá LeBron: Topp-10 tilþrif:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×