Handbolti

PSG vann toppliðið með sextán marka mun

Róbert í leik með PSG.
Róbert í leik með PSG. vísir/afp
PSG endurheimti annað sæti frönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Þá valtaði ofurliðið yfir topplið Montpellier, 36-20, og tók sætið á ný af liði Arnórs Atlasonar, St. Raphael. Hreint ótrúleg úrslit.

Okkar maður, Róbert Gunnarsson, fékk ekki mikið að spila í kvöld en skoraði eitt mark undir lokin. Nýtti sitt eina skot.

Tveim stigum munar á liðunum eftir leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×