Körfubolti

Þreföld tvenna Kobe í sigri Lakers | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
LA Lakers vann afar sterkan og langþráðan sigur á Toronto Raptors á heimavelli sínum í nótt, 129-122, í framlengdum leik.

Toronto er í efsta sæti Austurdeildarinnar og hafði unnið þrettán af fyrstu sextán leikjum sínum á tímabilinu sem er besta byrjun félagsins í sögu þess.

Kobe Bryant fór mikinn í sigri Lakers en hann var með 31 stig, tólf stoðsendingar og ellefu fráköst. Þetta var hans 20. þrefalda tvenna á ferlinum. Alls voru sjö leikmenn Lakers með minnst tíu stig í leiknum.

Kyle Lowry var með 29 stig, níu stoðsendingar og sex fráköst fyrir Toronto en Terrence Ross var með 20 stig.

DeMar DeRozan, stigahæsti leikmaður Toronto, var ekki með liðinu í nótt vegna slæmra nárameiðsla sem hann varð fyrir í tapi Toronto gegn Dallas á föstudagskvöldið.

Meistarar San Antonio unnu Boston, 111-89, á útivelli en þjálfari liðsins, Greg Popovich, sneri aftur á hliðarlíuna eftir að hafa gengist undir smávægilega aðgerð.

Danny Green skoraði átján stig fyrir San Antonio og Boris Diaw fimmtán. Jeff Green var með sextán fyrir Boston sem hefur tapað sjö af síðust átta leikjum sínum.

Rajon Rondo skoraði aðeins tvö stig í leiknum og klikkaði á báðum vítaskotunum sínum. Hann hefur nýtt aðeins níu af 30 vítaskotum sínum á tímabilinu til þessa.

Golden State vann Detroit, 104-93, og þar með sinn níunda sigur í röð. Draymond Green var með 20 stig og Steph Curry bætti við sextán auk þess sem han ngaf tíu stoðsendingar.

Þetta var áttunda tap Detroit í röð en það er lengsta taphrinan á ferli þjálfarans Stan Van Gundy.

Miami vann New york, 86-79. Dwyane Wade sneri aftur eftir að hafa misst af síðustu sjö leikjum liðsins og skoraði 27 stig, þar af þrettán í fjórða leikhluta. Chris Bosh kom næstur með 20 stig.

Carmelo Anthony skoraði 31 stig fyrir New York en hann hafði misst af tveimur leikjum vegna bakmemiðsla.

Úrslit næturinnar:

Boston - San Antonio 89-111

Brooklyn - Chicago 84-102

Detroit - Golden State 93-104

Sacramento - Memphis 85-97

New York - Miami 79-86

Phoenix - Orlando 90-93

Portland - Minnesota 107-93

LA Lakers - Toronto 129-122

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×