Handbolti

Sigur hjá Tandra og félögum | Atli Ævar markahæstur hjá Guif

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Atli Ævar skoraði sjö mörk fyrir Guif gegn Sävehof í dag.
Atli Ævar skoraði sjö mörk fyrir Guif gegn Sävehof í dag. mynd/guif
Tandri Már Konráðsson og félagar í sænska handboltaliðinu Ricoh HK unnu góðan fjögurra marka sigur, 26-30, á Hammarby í dag.

Tandri, sem hefur spilað vel með Ricoh í vetur, hafði hægt um sig í dag, skoraði eitt mark, en átti hins vegar fjórar stoðsendingar.

Ricoh er í 10. sæti deildarinnar með 15 stig, en liðið hefur unnið þrjá af síðustu fimm leikjum sínum.

Sävehof bar sigurorð af Eskilstuna Guif á heimavelli, 25-26.

Atli Ævar Ingólfsson átti flottan leik fyrir Guif og skoraði sjö mörk úr jafnmörgum skotum. Aron Rafn Eðvarðsson varði 11 skot í marki liðsins.

Guif er í 2. sæti deildarinnar, sex stigum á eftir Kristianstad sem á tvo leiki inni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×