Körfubolti

Blatt verður ekki rekinn frá Cleveland

Blatt ásamt LeBron James, stjörnu Cleveland.
Blatt ásamt LeBron James, stjörnu Cleveland. vísir/getty
Það hefur verið mikið rætt um stöðu þjálfara Cleveland Cavaliers, David Blatt, síðustu misseri og staða hans hjá félaginu sögð vera völt.

Framkvæmdastjóri félagsins, David Griffin, er pirraður á þessum fréttum og hefur nu gefið út að staða Blatt sé trygg.

„Þessi umræða um þjálfaramál okkar er fáranleg. Þetta er engin frétt. David Blatt er okkar þjálfari og verður það áfram. Þið getið ekki sagt að þetta sé einhver stuðningsyfirlýsing því hann þurfti ekki á henni að halda," sagði Griffin.

Framkvæmdastjórinn segir að það hafi alltaf legið fyrir að það tæki tíma að slípa liðið saman. Cleveland er búið að vinna 19 leiki í vetur og tapa 15.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×