Körfubolti

Kobe kláraði Indiana

Kobe á ferðinni í nótt.
Kobe á ferðinni í nótt. vísir/getty
Kobe Bryant sýndi gamalkunna takta í nótt þegar hann afgreiddi Indiana með stæl fyrir hönd LA Lakers.

Kobe skoraði 12 stig og sigurkörfuna 12 sekúndum fyrir leikslok. Hann skoraði níu stig á síðustu 150 sekúndum leiksins er Lakers vann sig til baka eftir að hafa verið 13 stigum undir í leiknum.

Kobe hefur verið að klúðra mikilvægum skotum undir lok leikja í vetur en núna loksins kom það hjá honum.

„Ég hef sett mörg svona skot niður á mínum ferli," sagði Kobe og hló.

Úrslit:

Cleveland-Dallas  90-109

Detroit-Sacramento  114-95

Miami-Brooklyn  88-84

NY Knicks-Milwaukee  82-95

Phoenix-Toronto  125-109

LA Lakers-Indiana  88-87

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×