Handbolti

Eitt íslenskt mark í danska boltanum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rut skoraði eitt mark.
Rut skoraði eitt mark. Vísir/Valli
Rut Jónsdóttir og Arna Sif Pálsdóttir voru í eldlínunni í danska handboltanum í dag. Aðeins eitt íslenskt mark leit þó dagsins ljós.

Rut skoraði eitt mark fyrir Randers sem vann FC Midtjylland á heimavelli, 22-18. Randers leiddi nánast allan leikinn og vann að lokum góðan sigur.

Arna Sif Pálsdóttir komst ekki á blað í tapi SK Arhus gegn Team Esbjerg á útivelli, 28-25. Arna Sif var einu sinni rekinn af velli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×