Körfubolti

Rondo frábær gegn gömlu félögunum | Myndbönd

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rondo í leiknum í nótt.
Rondo í leiknum í nótt. Vísir/Getty
Tíu leikir voru í NBA-körfuboltanum í dag, en þar bar hæst að Golden State Warriors vann enn einn leikinn og Cleveland rétt marði Charlotte.

LeBron James var ekki í liði Cleveland í nótt sem rétt marði Charlotte, 91-87. Kevin Love fór fyrir liði Cleveland en hann skoraði 27 stig. Næstur kom Kyrie Irving með 23 stig. Stigaskor dreifðist vel hjá Charlotte, en stigahæsti maður var með tólf stig. Þriðji sigurleikur Cleveland í röð, en fimmti tapleikur Charlotte.

Rajon Rondo lék á alls oddi í liði Dallas gegn sínum gömlu félögum í Boston, en Dallas vann með átján stiga mun, 119-101. Rondo skoraði 29 stig og tók fimm fráköst í liði Dallas sem var að vinna snin fjórða leik í röð. Avery Bradley var stigahæstur hjá Boston með 22 stig.

Kevin Durant skoraði 34 stig fyrir Oklahoma City sem vann Washington á heimavelli, 109-102. Durant tók að auki átta fráköst. Bradley Beal skoraði 21 stig fyrir Washingtok og tók tíu fráköst.

Golden State Warriors heldur áfram að vinna sína leiki en þeir unnu sinn 26 leik í nótt af þeim 31 sem búnir eru. Í nótt lögðu þeir Torono að velli, 126-105. Stephen Curry var stigahæstur með 32 stig, en Greivis Vasquez var stigahæstur hjá Toronto.

Los Angeles Lakers tapaði á heimavelli gegn Memphis í nótt í spennandi leik. Lokatölur 109-106, en þetta var 23. tapleikur Lakers í vetur. Mike Conley skoraði nítján stig fyrir Memphis og gaf níu stoðsendingar. Jeremy Lin og Ed Davis voru stigahæstir hjá Lakers með 20 stig hvor.

Öll úrslit næturinnar:

Cleveland - Charlotte 91-87

Houston - New Orleans 83-111

Atlanta - Utah 98-92

Brooklyn - Orlando 100-98

Washington - Oklahoma City 102-109

Toronto - Golden State 105-126

Dallas - Boston 119-101

Indiana - Milwaukee 94-91

Memphis - Los Angeles Lakers 109-106

Detriot - New York 97-81

Philadelphia - Phoenix 96-112

Jeremy Lin gefst ekki upp: Topp 10 næturinnar: Durant var góður í nótt: Svakaleg troðsla:
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×