Körfubolti

Stóri Svartfellingurinn tróð yfir Gasol með látum | Myndband

Tómas Þór Þóraðrson skrifar
Orlando Magic batt enda á sex leikja taphrinu í gærkvöldi þegar liðið kom á óvart og vann góðan sigur gegn sterku liði Chicago Bulls á útivelli, 121-114.

Miðherjinn stóri í liði Orlando, Nikola Vucevic, átti frábæran leik og skoraði 33 stig auk þess sem hann tók 11 fráköst.

Hann er nú búinn að skora 77 stig í síðustu tveimur leikjum, en hann bætti persónulegt met sitt í deildinni fyrir tveimur dögum þegar hann skoraði 34 stig í einum og sama leiknum.

Svartfellingurinn stóri, sem er 213 cm hár, bauð líka upp á eina rosalega troðslu þar sem hann setti sjálfan Pau Gasol á plakat og það með látum.

Vucevic leiðist ekki að keyra inn að körfunni og það gerði hann undir lok þriðja leikhluta í nótt. Hann fékk boltann hægra megin í teignum, dripplaði einu sinni og tróð svo boltanum yfir Gasol.

Þessa flottu troðslu má sjá í spilaranum hér að ofan.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×