Körfubolti

James spilar líklega á morgun

LeBron getur ekki beðið eftir að komast aftur út á völlinn.
LeBron getur ekki beðið eftir að komast aftur út á völlinn. vísir/getty
Það hefur lítið gengið hjá Cleveland Cavaliers síðan LeBron James meiddist en liðið fer að fá hann aftur.

Þjálfari Cavs, David Blatt, býst við því að James geti byrjað að spila aftur á morgun fari svo að æfing gangi vel í dag.

„Hann er á réttri leið og sífellt að styrkjast. Við látum hann taka vel á því í dag og ef allt gengur vel spilar hann á morgun," sagði Blatt.

James hefur ekki áður verið svona lengi frá vegna meiðsla en leiktíðina 2007-08 missti hann af fimm leikjum í röð.

Hinn þrítugi James er með 25,2 stig, 7,6 fráköst og 5,3 stoðsendingar að meðaltali í leik í vetur.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×