Handbolti

Bjarki Már markahæstur í tapleik

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Bjarki Már stóð sig að vanda
Bjarki Már stóð sig að vanda mynd/aðsend
Bjarki Már Elísson var markahæstur hjá Eisenach sem tapaði 32-31 fyrir Essen í þýsku B-deildinni í handbolta í kvöld.

Bjarki skoraði 9 mörk í leiknum og Hannes Jón Jónsson 4 en liðið átti í nokkrum vandræðum gegn Essen í kvöld þó liðið hafi náð að minnka muninn í lokin.

Essen var 18-13 yfir í hálfleik og hélt Eisenach alltaf í öruggri fjarlægð lengi framan af seinni hálfleik en Eisenach náði að minnka muninn í lokin en herslumuninn vantaði til að liðið næði stigi.

Essen er í neðri hluta deildarinnar með 15 stig en Eisenach er í 6. sæti með 27 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×