Körfubolti

Davis meiddist á öxl

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Davis fellur í jörðina
Davis fellur í jörðina vísir/getty
Aðeins sólarhring eftir að Anthony Davis tryggði New Orleans Pelicans sigurinn á Oklahoma City Thunder með flautukörfu meiddist hann á öxl.

Davis féll í gólfið eftir að hafa troðið boltanum viðstöðulaust seint í fyrri hálfleik í ósigri Pelicans gegn Chicago Bulls með þeim afleiðingum að hann fór af leikvelli og snéri ekki aftur.

Röntgenmyndataka sýndi að öxlin er óbrotin en óvíst er hve lengi þessi 21 árs gamla stórstjarna Pelicans verði utan vallar.

„Þegar hann fellur svona eru fyrstu viðbrögð þín að taka hann af leikvelli,“ sagði Monty Williams þjálfari Pelicans. „Þú finnur til með manni sem fellur svona illa í gólfið.“

Staðan var jöfn 35-35 þegar Davis fór af leikvelli og rúmlega fjórar mínútur eftir af fyrri hálfleik. Bulls vann leikinn 107-72.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×