Handbolti

Hansen í banastuði þegar PSG fór áfram

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hansen skoraði átta.
Hansen skoraði átta. Vísir/Getty
PSG vann auðveldan ellefu marka sigur á HC Meskhov Brest í Meistaradeildinni í handbolta í kvöld. Róbert Gunnarsson skoraði eitt mark, en lokatölur urðu 36-25.

Fyrri hálfleikurinn var frekar jafn og spennandi og leiddu heimamenn í PSG með fjórum mörkum í hálfleik, 18-14.

Í síðari hálfleik var allt annað uppá teningnum og lokatölur eins og fyrr segir ellefu marka sigur PSG, 36-25.

Mikkel Hansen skoraði átta mörk fyrir PSG, en næstur kom Igor Vori með sex. Róbert skoraði eitt mark eins og fyrr segir. David Spieler var markahæstur hjá Brest með sjö mörk.

PSG er í öðru sæti síns riðils með 12 stig, tveimur stigum á eftir Kiel sem á leik síðar í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×