Handbolti

Rúnar skoraði fjögur en fékk ekki að spila síðustu mínúturnar

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rúnar í landsleik.
Rúnar í landsleik. Vísir/Vilhelm
Rúnar Kárason skoraði fjögur mörk fyrir Hannover-Burgdorf í jafntefli liðsins gegn TuS N-Lübbecke á útivelli í gær, 25-25.

Fyrri hálfleikur var afar kaflaskiptur, en að honum loknum leiddu Lübbecke með tveimur mörkum 13-11.

Leikurinn var jafn og spennandi í síðari hálfleik, Kai Häfner bjargaði stigi fyrir Hannover. Hann jafnaði metin á síðustu sekúndu leiksins.

Rúnar skoraði eins og fyrr segir fjögur mörk, en hann spilaði ekki síðustu átta mínúturnar og lét óánægju sína í ljós á Twitter eins og má sjá hér að neðan.

Hannover situr í tíunda sæti deildarinnar með 22 stig, en Lübbecke er í fjórtánda sætinu með átján stig.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×