Handbolti

Dagur sá sína menn vinna í Portúgal

Anton Ingi Leifsson skrifar
Dagur á HM.
Dagur á HM. Visir/Getty
Atli Ævar Ingólfsson skoraði tvö mörk í tapi Eskilstuna Guif fyrir MT Melsungen í EHF-bikarnum.

Melsungen var 16-14 yfir í hálfleik, en þeir unnu að endingu fjögurra marka sigur; 31-27.

Patrik Fahlgren skoraði sjö mörk fyrir Melsungen var markahæstur. Viktor Östlund skoraði sex fyrir Guif.

Ekki kemur fram hversu mörg skot Aron Rafn Eðvarðsson varði, en Kristján Andrésson þjálfar Guif.

Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í Füchse Berlín unnu sex marka sigur á Porto í sömu keppni, 26-20. Staðan var 14-12 í hálfleik, Füchse í vil.

Evgeni Pevnov var markahæstur hjá Degi og félögum, en hann skoraði fimm mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×