Körfubolti

Karl Malone vill slást við Kobe Bryant

Malone og Kobe.
Malone og Kobe. vísir/getty
Rúmlega tíu ára gamalt rifrildi á milli Karl Malone og Kobe Bryant er komið aftur upp á yfirborðið.

Malone reyndi við eiginkonu Kobe á Lakers-leik árið 2003 en þá var Malone meiddur. Kobe fékk að vita af því eftir leikinn og var ekki par sáttur. Hann hringdi í bréfberann, eins og Malone var alltaf kallaður, og hellti sér yfir hann.

Malone hafði ekki mikið að segja við Kobe og neitaði engu.

Malone var spurður út í þetta atvik um daginn og kempan minnti þá á að Kobe mætti gjarna slást við sig út af þessu máli.

„Við lentum í smá rifrildi en ég er ekki í neinni fýlu út í Kobe," sagði Malone sem er mikill kúreki.

„Ég er gamaldags kúreki. Í gamla daga þegar menn voru eitthvað ósáttir þá notuðum við ekki byssur og hnífa. Við stigum á bak við húsasund og létum hnefana tala," sagði Malone og viðurkennir að hafa boðið Kobe í slag á sínum tíma út af þessu máli.

„Það tilboð stendur enn."

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×