Körfubolti

Harden einni stoðsendingu frá rosalegri þrennu | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
James Harden átti frábæran leik.
James Harden átti frábæran leik. vísir/getty
James Harden átti stórkostlegan leik fyrir Houston Rockets í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið lagði Phoenix Suns á útivelli, 127-118.

Harden var einni stoðsendingu frá ævintýralega flottri þrennu, en hann skoraði 40 stig, tók 12 fráköst og gaf 9 stoðsendingar.

Þessi magnaði leikmaður skoraði 20 stig bara í fjórða leikhlutanum þar sem Houston sleit sig frá Phoenix og landaði sigrinum, en gestirnir unnu síðasta fjórðunginn með tíu stigum þökk sé honum.

Harden hitti úr 13 af 23 skotum sínum í teignum og þremur af sjö þriggja stiga skotum auk þess að nýta 11 af 14 vítaskotum.

Houston heldur eins leiks forystu á Portland í baráttunni um þriðja sæti í vesturdeildinni þar sem heimavallarrétturinn mun væntanlega skipta þokkalegu máli í úrslitakeppninni, en liðið er þremur sigrum á eftir Memphis sem er í öðru sæti.

Sjáðu Harden fara á kostum í nótt:


Talandi um Memphis. Það vann það níu stiga heimasigur á Brooklyn Nets í nótt, 95-86. Heimamenn voru með þrettán stiga forskot fyrir síðasta fjórðunginn sem gestirnir náðu ekki að éta upp.

Marc Gasol heldur áfram að spila eins og sá sem valdið hefur fyrir Memphis, en spænski miðherjinn skoraði 14 stig og tók 11 fráköst. Zach Randolph var þó stigahæstur með 19 stig auk þess sem hann tók 8 fráköst.

Bróðir Gasol, Pau, hefur líka spilað frábærlega á tímabilinu eftir að skipta yfir til Chicago og hann fór fyrir sínum mönnum sem völtuðu yfir Sacramento Kings, 104-86, á heimavelli.

Gasol skoraði 26 stig og tók 16 fráköst, en hann hitti úr 11 af 15 skotum sínum í teignum. Tony Snell kom hrikalega öflugur inn af bekknum og skoraði 24 stig, það mesta sem hann hefur gert á tímabilinu.

Chicago-liðið er í þriðja sæti austurdeildarinnar og búið að vinna þrjá leiki í röð, en það er 2,5 sigrum á eftir Toronto sem er í öðru sætinu. Atlanta er sem fyrr á toppnum í austrinu með örugga forystu þar.

Úrslit næturinnar:

Charlotte Hornets - Detroit Pistons 78-106

Phoenix Suns - Hoston Rockets 118-127

Chicago Bulls - Sacramento Kings 104-86

Memphis Grizzlies - Brooklyn Nets 95-86

LA Lakers - Denver Nuggets 96-106

Staðan í deildinni.

Jeff Green setur niður hollí hú-troðslu: Ben McLemore treður í Chicago
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×