Handbolti

Guðjón Valur með fjögur mörk fyrir Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson. Vísir/EPA
Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Barcelona unnu í kvöld tíu marka sigur á Helvetia Anaitasuna 35-25, í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Barcelona hélt því sigurgöngu sinni áfram en liðið hefur unnið alla sautján deildarleiki sína á tímabilinu.

Barcelona var 15-10 yfir í hálfleik og var með mikla yfirburði í seinni hálfleiknum.

Guðjón Valur nýtti öll fjögur skot sín í leiknum en Víctor Tomás og Siarhei Rutenka voru markahæstir með átta mörk hvor. Nikola Karabatic lét sér nægja að skora tvö mörk í leiknum.

Danjel Saric, markvörður Katar á HM, var frábær í markinu hjá Barcelona og varði 47 prósent skotanna sem komu á hann í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×