Handbolti

Aron skoraði þrjú mörk er Kiel komst aftur á toppinn

Aron á ferðinni með Kiel.
Aron á ferðinni með Kiel. vísir/getty
Aron Pálmarsson virðist vera búinn að jafna sig af höfuðmeiðslunum sem hann hlaut á HM en hann spilaði með Kiel í kvöld.

Þá vann Kiel stórsigur, 37-18, gegn Balingen sem sá aldrei til sólar í leiknum.

Aron skoraði þrjú mörk í leiknum. Rune Dahmke var markahæstur með 11 mörk og Domogoj Duvnjak skoraði 10.

Kiel er þar með komið með tveggja stiga forskot á ný í þýsku deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×