Körfubolti

Bosh á ágætum batavegi

Chris Bosh.
Chris Bosh. vísir/getty
Stjarna Miami Heat, Chris Bosh, liggur enn á spítala eftir að hafa verið greindur með blóðtappa í lunga.

Þjálfari Heat, Erik Spoelstra, segir að Bosh muni losna af spítalanum fljótlega en vildi þó ekki gefa nákvæmlega upp hvenær Bosh fái að fara heim.

Hann ku vera á ágætum batavegi en þrátt fyrir það eru engar líkur á því að hann spili meiri körfubolta á þessu tímabili.

Bosh skoraði 21,1 stig, tók 7 fráköst og gaf 2,2 stoðsendingar að meðaltali í 44 leikjum í vetur. Bosh var þess utan með 46 prósent skotnýtingu.

Hér að neðan má sjá mynd sem Bosh birti á Instagram.

NBA

Tengdar fréttir

Bosh ekki í lífshættu

Þjálfari Miami Heat vildi ekki staðfesta að grunur væri að Chris Bosh væri með blóðtappa í lungum.

Bosh sendur á sjúkrahús

Miami Heat staðfesti í gær að stjörnuleikmaður liðsins, Chris Bosh, væri farinn í rannsóknir á spítala.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×