Handbolti

Róbert skoraði níu mörk á Spáni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Róbert skoraði níu mörk fyrir Paris SG í dag.
Róbert skoraði níu mörk fyrir Paris SG í dag. vísir/afp
Róbert Gunnarsson var markahæstur í liði Paris Saint-Germain þegar liðið tapaði fyrir Naturhouse La Rioja, 35-33, á útivelli í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í dag.

Tapið breytti litlu fyrir Paris sem var þegar búið að tryggja sér 2. sæti í A-riðlinum.

Róbert skoraði níu mörk fyrir Paris en franski landsliðsmaðurinn William Accambray kom næstur með átta mörk.

Barcelona lauk riðlakeppninni með fjögurra marka sigri, 25-29. á Besiktas í Tyrklandi. Börsungar voru þegar búnir að tryggja sér efsta sætið í B-riðli.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fjögur mörk fyrir Barcelona í dag og 43 alls í riðlakeppninni.

Kyril Lazarov og Siarhei Rutenka voru markahæstir í liði Barcelona með sjö mörk hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×