Handbolti

Samherji Róberts til Sviss

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Császár hefur leikið hátt í 200 landsleiki fyrir Ungverjaland.
Császár hefur leikið hátt í 200 landsleiki fyrir Ungverjaland. vísir/afp
Gábor Császár, samherji Róberts Gunnarssonar hjá Paris Saint-Germain, hefur skrifað undir tveggja ára samning við svissnesku meistarana í Kadetten Schaffhausen.

Császár, sem er þrítugur leikstjórnandi, hefur leikið með Paris frá árinu 2012 en hann hefur einnig leikið í Danmörku og á Spáni, auk heimalandsins.

Þjálfari Kadetten er Markus Baur, fyrrverandi leikstjórnandi þýska landsliðsins, en Björgvin Páll Gústavsson lék með liðinu á árunum 2009-2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×