Handbolti

Guðjón Valur markahæstur í stórsigri Börsunga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðjón Valur og félagar eiga Spánarmeistaratitilinn vísan.
Guðjón Valur og félagar eiga Spánarmeistaratitilinn vísan. mynd/barcelona
Barcelona rúllaði yfir GlobalCaja í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 27-39.

Börsungar leiddu með sex mörkum í hálfleik, 13-19, juku muninn jafnt og þétt í seinni hálfleik. Að lokum skildu tólf mörk liðin að, 27-39.

Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í liði Barcelona en landsliðsfyrirliðinn skoraði sex mörk úr átta skotum. Kiril Lazarov og Víctor Tómas komu næstir með fimm mörk hvor en allir útileikmenn Börsunga nema einn komust á blað í dag.

Barcelona er búið að vinna alla 20 leiki sína í vetur og er með átta stiga forskot á toppi spænsku deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×