Körfubolti

NBA: LeBron James tapaði einu sinni enn fyrir Miami | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dwyane Wade var frábær í nótt á móti sínum gamla liðsfélaga.
Dwyane Wade var frábær í nótt á móti sínum gamla liðsfélaga. Vísir/Getty
LeBron James, fyrrum leikmaður Miami Heat og núverandi leikmaður Cleveland Cavaliers, þurfti aftur að snúa stigalaus sem frá Suðurströndinni eftir tap á móti sínum gömlu félögum þegar liðin mættust í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

Dwyane Wade skoraði 21 af 32 stigum sínum í fyrri hálfleik þegar Miami Heat vann 106-92 heimasigur á Cleveland Cavaliers en Wade hitti úr 13 af 18 skotum sínum og stal fimm boltum. Goran Dragic var með 20 stig og 9 stoðsendingar og Hassan Whiteside bætti við 16 stigum og 11 fráköstum. Miami var 56-38 yfir í hálfleik og náði mest 25 stiga forskoti í þriðja leikhlutanum.

LeBron James skoraði 16 af 26 stigum sínum í fjórða leikhlutanum og Kyrie Irving skoraði 21 stig. Cleveland var búið að vinna fjóra leiki í röð fyrir þennan leik en hitti aðeins úr 38 prósent skota sína í nótt. Kevin Love spilaði ekki með Cleveland í leiknum.

Chandler Parsons og Rajon Rondo fóru fyrir 119-115 endurkomusigri Dallas Mavericks á Oklahoma City Thunder en Thunder var fimmtán stigum yfir í þriðja leikhlutanum. Parsons skoraði 31 stig, Rondo var með 13 stoðsendingar og þá skoraði Dirk Nowitzki 22 stig. Russell Westbrook var með 24 stig, 12 stoðsendingar og 8 fráköst en fór af velli með sex villur undir lokin.

Golden State Warriors tryggði sér sæti í úrslitakeppninni með 108-105 sigri á Los Angeles Lakers. Klay Thompson skoraði 26 stig og Stephen Curry var með 19 stig og 9 stoðsendingar. Golden State var þar með fyrsta liðið í Vesturdeildinni til að tryggja sig inn en liðið á enn eftir að spila sextán leiki.

Kyle Lowry var með þrennu þegar Toronto Raptors vann 117-98 sigur á Indiana Pacers en Lowry var með 20 stig, 11 fráköst og 10 stoðsendingar. Lou Williams skoraði 25 stig fyrir Toronto en George Hill skoraði mest fyrir Pacers-liðið eða 23 stig.

John Wall var með 21 stig, 11 stoðsendingar og 9 fráköst þegar Washington Wizards vann 105-97 heimasigur á Portland Trailblazers. Þetta var fjórði sigur Washington-liðsins í röð. LaMarcus Aldridge var með 24 stig og 12 fráköst fyrir Portland.

Úrslit allra leikja í NBA-deildinni í nótt:

Indiana Pacers - Toronto Raptors     98-117          

Washington Wizards - Portland Trail Blazers     105-97         

Boston Celtics - Philadelphia 76ers     108-89         

Memphis Grizzlies - Denver Nuggets     92-81         

Minnesota Timberwolves - Brooklyn Nets     106-122         

Miami Heat - Cleveland Cavaliers     106-92         

Dallas Mavericks - Oklahoma City Thunder     119-115      

Utah Jazz - Charlotte Hornets     94-66         

Sacramento Kings - Atlanta Hawks     103-110         

Golden State Warriors - LA Lakers     108-105     

Staðan í NBA-deildinni

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×