Haukar skelltu toppliðinu Anton Ingi Leifsson skrifar 15. mars 2015 14:03 Hardy spilaði vel fyrir Hauka. vísir/valli
Haukar skelltu toppliði Snæfells í Dominos-deild kvenna í körfubolta í dag. Leikið var í Stykkishólmi en gestirnir úr Hafnarfirði unnu sjö stiga sigur, 74-67. Leikurinn átti að fara fram í gær, en vegna óveðursins sem dundi á landann í gær var leikið í hádeginu í dag. Heimastúlkur byrjuðu betur og leiddu meðal annars í hálfleik 43-34. Gestirnir úr Hafnarfirðinum byrjuðu þriðja leikhlutann afar vel og unnu hann 20-10 og þær því komnir yfir fyrir lokaleikhlutann, en þessi lið börðust um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra. Fjórði leikhlutinn var ansi fjörugur. Íslandsmeistararnir voru komnir fimm stigum yfir, 59-54, en Hafnarfjarðarliðið var ekki hætt. Þær skoruðu sautján stig gegn fjórum frá Snæfell og staðan skyndilega orðin 71-63, Haukum í vil. Haukastúlkur héldu svo út og unnu að lokum sjö stiga sigur, 67-74. Frábær sigur á toppliðinu í Stykkishólmi. LeLe Hardy var sem fyrr virkilega öflug hjá Haukum, en hún skoraði 33 stig, hirti 23 fráköst og gaf sex stoðsendingar. Kristin Denise McCarthy spilaði vel í liði Snæfells, en hún skoraði 20 stig auk þess að taka 11 fráköst og gefa tvær stoðsendingar. Snæfell heldur toppsætinu, en þær eru með 42 stig. Haukastúlkur eru í þriðja sætinu með 30 stig,en þær eru í harðri baráttu við Val og Grindavík um sæti í úrslitakeppninni.Snæfell: Kristen Denise McCarthy 20/11 fráköst/3 varin skot, Hildur Sigurðardóttir 14/8 fráköst/7 stoðsendingar, Gunnhildur Gunnarsdóttir 11/4 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir 7/4 fráköst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 5/5 fráköst, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 4/4 fráköst, María Björnsdóttir 4, Rebekka Rán Karlsdóttir 2, Alda Leif Jónsdóttir 0, Rósa Indriðadóttir 0, Anna Soffía Lárusdóttir 0.Haukar: LeLe Hardy 33/23 fráköst/6 stoðsendingar, Dagbjört Samúelsdóttir 13, Sólrún Inga Gísladóttir 10, Auður Íris Ólafsdóttir 7, Þóra Kristín Jónsdóttir 5, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 5/9 fráköst, Hanna Þráinsdóttir 1, Rósa Björk Pétursdóttir 0, Rakel Rós Ágústsdóttir 0, Guðrún Ósk Ámundadóttir 0, Dýrfinna Arnardóttir 0, Magdalena Gísladóttir 0.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Enski boltinn Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira