Körfubolti

LeBron stoðsendingahæstur í sögu Cleveland

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
James og félagar eru á fínu skriði þessa dagana.
James og félagar eru á fínu skriði þessa dagana. vísir/afp
LeBron James sló stoðsendingametið í sögu Cleveland Cavaliers þegar Cavs bar sigurorð af Dallas Mavericks í nótt, 127-94.

James gaf stoðsendingu númer 4207 þegar hann sendi boltann á James Jones sem setti niður þrist þegar rúmar 10 mínútur voru eftir af 2. leikhluta. James komst þar með upp fyrir Mark Price á stoðsendingalistanum hjá Cleveland.

Price spilaði í níu ár með Cleveland en á þeim tíma komst liðið einu sinni í úrslit Austurdeildarinnar, árið 1992, þegar það beið lægri hlut fyrir Michael Jordan og félögum í Chicago Bulls. Price er í dag aðstoðarþjálfari hjá Charlotte Hornets.

James á nú metið yfir flest stig skoruð, flestar stoðsendingar og flesta stolna bolta í sögu Cleveland. Aðeins sjö aðrir leikmenn hafa afrekað slíkt hið sama.

Metið yfir flest stig, stoðsendingar og stolnir boltar í sögu eins félags:

Michael Jordan - Chicago Bulls

Kevin Garnett - Minnesota Timberwolves

Reggie Miller - Indiana Pacers

Gary Payton - Seattle Supersonics

Randy Smith - LA Clippers

Isiah Thomas - Detroit Pistons

Dwayne Wade - Miami Heat

Mark Price lék með Cleveland á árunum 1986-1995.vísir/getty
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×