Bílar

Næsta kynslóð Cruze smíðuð í Mexíkó

Finnur Thorlacius skrifar
Bílaverksmiðja Nissan í Mexíkó.
Bílaverksmiðja Nissan í Mexíkó.
General Motors ætlar að smíða næstu kynslóð Chevrolet Cruze í Mexíkó. Með því ætlar GM að nýta sér þann lága starfsmannakostnað sem þar er.

Fleiri og fleiri bílaframleiðendur hafa snúið sér til Mexíkó til framleiðslu bíla sinna þar en í Mexíkó er einna lægstur kostnaður við framleiðslu bíla og nálægð Mexíkó við stóra bílamarkaðinn í Bandaríkjunum og Kanada hjálpar að auki til.

GM ætlar að fjárfesta fyrir 350 milljón dollara, eða 48 milljarða króna í nýrri verksmiðju í Mexíkó. Cruze verður reyndar einnig framleiddur í Ohio í Bandaríkjunum og í Gunsan í S-Kóreu fyrir markaðinn í Asíu.

Toyota er einnig að fjárfesta í bílaverksmiðju í Mexíkó og Volkswagen hefur ákveðið að fjárfesta fyrir 137 milljarða króna í nýrri verksmiðju í Mexíkó. 






×