Körfubolti

Enn ein þrennan hjá Westbrook | Myndbönd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Westbrook treður boltanum gegn Atlanta í nótt.
Westbrook treður boltanum gegn Atlanta í nótt. vísir/afp
Tólf leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt.

Russell Westbrook heldur áfram að fara á kostum en hann náði sinni níundu þrennu á tímabilinu þegar Oklahoma City Thunder vann Atlanta Hawks, topplið Austurdeildarinnar, 123-115 á heimavelli.

Westbrook skoraði 36 stig, þar af 17 í 4. leikhluta sem OKC vann með 13 stigum, 33-20. Hann tók einnig 10 fráköst og gaf 14 stoðsendingar. Þetta var í sjöunda sinn sem Westbrook nær þrennu eftir Stjörnuleikinn, sem fór um miðjan febrúar, og jafnframt 17. þrennan hans á ferlinum.

Dion Waiters skilaði 26 stigum fyrir OKC og Steven Adams skoraði 12 stig og tók 16 fráköst.

Pero Antic skoraði mest fyrir Atlanta, eða 22 stig.

Chris Paul var í miklu stuði þegar Los Angeles Clippers vann góðan sigur á Washington Wizards, 113-99.

Paul skoraði 30 stig og gaf 15 stoðsendingar en hann hefur spilað eins og engill upp á síðkastið. DeAndre Jordan var einnig öflugur í liði Clippers með 10 stig og 23 fráköst. Þá skoraði J.J. Redick 26 stig og Blake Griffin 22 fyrir Clippers sem er í 5. sæti Vesturdeildarinnar.

John Wall var atkvæðamestur í liði Washington með 19 stig og 10 stoðsendingar. Galdramennirnir sitja í 5. sæti Austurdeildarinnar.

Meistarar San Antonio Spurs lyftu sér upp í 6. sæti Vesturdeildarinnar með 12 stiga sigri á Boston Celtics á heimavelli, 101-89.

Kawhi Leonard skoraði 22 stig og tók sjö fráköst í jöfnu liði Spurs.

Evan Turner var stigahæstur í liði Boston með 17 stig en liðið er í 8. sæti Austurdeildarinnar og er í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni.

Úrslitin í nótt:

Orlando - Portland 111:104

Philadelphia - New York 97:81

Brooklyn - Milwaukee 129:127

Cleveland - Indiana 95:92

Miami - Denver 108:91

Chicago - Toronto 108:92

Oklahoma City - Atlanta 123:115

Dallas - Memphis 101:112

San Antonio - Boston 101:89

Sacramento - Charlotte 101:91

Golden State - New Orleans 112:96

LA Clippers - Washington 113:99

Westbrook var magnaður í nótt Derrick Williams með rosalega troðslu John Wall í loftköstum
NBA

Tengdar fréttir

Grímuklædda ofurhetjan frá Oklahoma

Russell Westbrook fylgir eftir frábærum febrúarmánuði með jafnvel enn betri frammistöðu í mars. Það lítur úr fyrir að Westbrook ætli nánast upp á sitt einsdæmi að koma Oklahoma City Thunder í úrslitakeppnina enda liðið að spila án síns "besta“ leikmanns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×