Handbolti

Bjerringbro-Silkeborg í engum vandræðum með Midtjylland

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vignir í landsleik.
Vignir í landsleik. vísir/daníel
Bjerringbro-Silkeborg rúllaði yfir HC Midtjylland í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, en lokatölur urðu sex marka sigur Silkeborg, 25-19.

Eftir tuttugu mínútna leik leiddu gestirnir með fimm marka mun 5-10. Staðan í hálfleik var svo 14-10, Silkeborg í vil.

Þeir stigu svo á bensíngjöfina í þeim síðari og hleyptu Bjerringbro-Silkeborg hvergi nærri sér. Lokatölur urðu svo 25-19.

Vignir Svavarsson skoraði tvö mörk úr fjórum skotum fyrir Midtjylland og lét reka sig einu sinni útaf, en Sigvaldi Guðjónsson komst ekki á blað fyrir gestina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×