Körfubolti

NBA: Westbrook fékk að spila og OKC er enn á lífi | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Russell Westbrook.
Russell Westbrook. Vísir/EPA
Barátta New Orleans Pelicans og Oklahoma City Thunder um síðasta sætið í úrslitakeppni Vesturdeildar NBA heldur áfram og það kemur ekki í ljós fyrr en í lokaleik liðanna á miðvikudaginn hvort liðið fær áttunda sætið.

Russell Westbrook skoraði 36 stig auk þess að taka 11 fráköst og gefa 7 stoðsendingar þegar Oklahoma City Thunder hélt sér á lífi með því að vinna 101-90 sigur á Portland Trail Blazers en tap hefði þýtt að Thunder-liðið kæmist ekki í úrslitakeppnina. Enes Kanter var með 27 stig og 13 fráköst fyrir OKC en Meyers Leonard skoraði mest fyrir Portland eða 24 stig.

Russell Westbrook fékk tæknivillu í leiknum á undan sem var hans sextánda á tímabilinu og hefði þýtt leikbann. NBA-deildin ákvað hinsvegar að fella hana niður og því gat Westbrook spilað þennan mikilvæga leik í nótt.

Anthony Davis var með 24 stig, 11 fráköst og 6 varin skot þegar New Orleans Pelicans vann 100-88 sigur á Minnesota Timberwolves. Tyreke Evans var með 22 stig og 6 stoðsendingar fyrir Pelicans og Eric Gordon skoraði 22 sitg.  Zach LaVine var með 24 stig fyrir Minnesota.

Oklahoma City Thunder verður þar með að vinna lokaleikinn sinn á móti Minnesota Timberwolves og treysta á það að meistarar San Antonio Spurs vinni New Orleans Pelicans. Þau úrslit myndu þýða að Thunder kæmist í úrslitakeppnin en New Orleans Pelicans sæti eftir.

Nikola Mirotic skoraði 26 stig og Pau Gasol var með 22 stig og 11 fráköst þegar Chicago Bulls vann 113-86 sigur á Brooklyn Nets og tryggði sér heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Derrick Rose var með 13 stig og 7 stoðsendingar á 23 mínútum.

Brooklyn Nets datt niður í 9. sætið í Austurdeildinni og þarf núna að vinna síðasta leikinn sinn á miðvikudaginn og treysta jafnframt á það að Indiana Pacers (8. sæti) tapi síðustu tveimur leikjum sínum.

LeBron James var með þrennu, 21 stig, 11 stoðsendingar og 10 fráköst, þegar Cleveland Cavaliers vann 109-97 sigur á Detroit Pistons. J.R. Smith setti niður átta þriggja stiga körfur og endaði með 28 stig fyrir Cleveland-liðið sem hefur unnuð 33 af 42 leikjum sínum frá 15. janúar.

Það er líka mikil spenna í baráttunni um 2. sætið í Vestrinu en bæði Houston Rockets og Los Angeles Clippers unnu leiki sína í nótt. San Antonio Spurs hefur unnið ellefu leiki í röð og öll þessi þrjú lið hafa unnið 55 leiki þegar þau eiga aðeins einn leik eftir.

James Harden skoraði 29 stig og Josh Smith var með 16 stig og 11 fráköst þegar Houston Rockets vann 100-90 útisigur á Charlotte Hornets. Jason Terry skoraði 13 stig fyrir Houston og þeir Trevor Ariza og Corey Brewer skoruðu báðir 11 stig.

Blake Griffin var með 22 stig og DeAndre Jordan náði tröllatvennu, 20 stig og 21 frákast, þegar Los Angeles Clippers vann 110-103 sigur á Denver Nuggets. Þetta var sjötti sigur Clippers-liðsins í röð. Griffin var einnig með 9 fráköst og 8 stoðsendingar.  

Öll úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

Charlotte Hornets - Houston Rockets     90-100         

Cleveland Cavaliers - Detroit Pistons     109-97         

Philadelphia 76ers - Milwaukee Bucks     97-107         

Atlanta Hawks - New York Knicks     108-112         

Brooklyn Nets - Chicago Bulls     86-113          

Miami Heat - Orlando Magic     100-93          

Minnesota Timberwolves - New Orleans Pelicans     88-100         

Oklahoma City Thunder - Portland Trail Blazers     101-90         

Utah Jazz - Dallas Mavericks     109-92          

Sacramento Kings - Los Angeles Lakers     102-92     

Golden State Warriors - Memphis Grizzlies     111-107         

Los Angeles Clippers - Denver Nuggets     110-103

Staðan í NBA-deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×