Körfubolti

Sjö leikmenn frá Kentucky ætla í nýliðaval NBA-deildarinnar

Þessir strákar ætla allir að fara í NBA-deildina.
Þessir strákar ætla allir að fara í NBA-deildina. vísir/getty
Það verður gjörbreytt lið sem Kentucky-háskólinn teflir fram í næsta vetur.

Hvorki fleiri né færri en sjö leikmenn liðsins hafa ákveðið að gefa kost á sér í nýliðaval NBA-deildarinnar í ár. Þetta eru eðlilega sjö stigahæstu leikmenn liðsins.

Karl-Anthony Towns verður hugsanlega valinn fyrstur í valinu en spurning hvenær þeir Aaron Harrison, Andrew Harrison, Willie Cauley-Stein, Devon Booker, Dakari Johnson og Trey Lyles fara í valinu.

Það er heldur betur verk fyrir höndum hjá þjálfaranum, John Calipari, að setja saman nýtt lið.

Lið Kentucky í vetur er talið vera eitt það besta í sögunni. Liðið vann 38 leiki í röð í vetur og flestir töldu að liðið færi alla leið en Wisconsin stöðvaði liðið í undanúrslitum. Það er til marks um styrkleika liðsins að sjö leikmenn liðsins telji sig eiga erindi í NBA-deildina.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×