Handbolti

Alexander ekki með landsliðinu í kvöld

Alexander í leik með landsliðinu.
Alexander í leik með landsliðinu. vísir/vilhelm
Íslenska landsliðið í handbolta verður að komast í gegnum lið Serba í Höllinni í kvöld án Alexanders Petersson.

Petersson kom til landsins meiddur á nára og hefur verið í stöðugri meðferð hjá sjúkraþjálfara í von um að hann geti spilað með liðinu að einhverju leyti í kvöld.

Sú meðferð bar því miður ekki árangur og Alexander verður ekki í leikmannahópi íslenska liðsins í kvöld.

Pressan færist því yfir á þá Ásgeir Örn Hallgrímsson og Rúnar Kárason að skila stöðu hægri skyttu í kvöld. Þeir hafa áður gert það með sóma og verða vonandi í stuði í kvöld.

Leikurinn hefst klukkan 19.30 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×