Körfubolti

Washington með sópinn á lofti | Myndbönd

John Wall fagnar.
John Wall fagnar. vísir/getty
Línur eru farnar að skýrast í úrslitakeppni NBA-deildarinnar eftir leiki helgarinnar.

Washington Wizards virðist vera á uppleið en liðið gerði sér lítið fyrir og skellti Toronto 4-0 í einvígi liðanna.

Þetta er í fyrsta sinn í sögu Wizards sem liðið sópar andstæðingi sínum í úrslitakeppninni.

Cleveland er líka komið áfram eftir að hafa sópað Boston frí en Dallas er á lífi eftir að hafa svarað í Texas-slagnum í gær.

Mesta spennan er þó hjá San Antonio og LA Clippers þar sem rimma liðanna er hnífjöfn eftir magnaða leiki.

Úrslit (staðan í einvíginu):

San Antonio-LA Clippers  105-114 (2-2)

Portland-Memphis  109-115  (0-3)

New Orleans-Golden State  98-109 (0-4)

Boston-Cleveland  93-101 (0-4)

Toronto-Washington  94-125 (0-4)

Houston-Dallas  109-121  (3-1)

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×