Handbolti

Annað tap Ricoh í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tandri skoraði eitt mark í dag.
Tandri skoraði eitt mark í dag. mynd/heimasíða ricoh
Tandri Már Konráðsson og félagar í sænska handboltaliðinu Ricoh HK lutu í lægra haldi fyrir VästeråsIrsta HF, 22-21, í umspilsriðli um sæti í efstu deild að ári.

Tandri náði sér ekki á strik í leiknum og skoraði aðeins eitt mark úr átta skotum.

Ricoh hefur tapað tveimur leikjum í röð í umspilinu en er samt sem áður í 2. sæti riðilsins með sex stig. Sex lið eru í riðlinum en þrjú þeirra halda sæti sínu í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×