Handbolti

Gottfridsson skaut Flensburg í úrslit með flautumarki

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gottfridsson fagnar marki fyrir Flensburg.
Gottfridsson fagnar marki fyrir Flensburg. vísir/getty
Jim Gottfridsson skaut Flensburg í úrslitaleik þýska bikarsins í handbolta, en hann skoraði með flautumarki gegn Rhein-Neckar Löven. Lokatölur 24-23 í rosalegum leik.

Leikurinn var rosalega spennandi. Staðan var jöfn í hálfleik 10-10, en Flensburg jafnaði metin ellefu sekúndum fyrir lok fyrri hálfleiks.

Eftir stundarfjórðung í síðari hálfleik var staðan orðin 19-16, en Flensburg hélt sér inni í baráttunni. Flensburg fékk lokasóknina og Gottfridsson tryggði sigurinn á lokasekúndunni. Lokatölur 24-23 sigur Flensburg.

Stórleikur Uwe Gensheimer dugði ekki til, en hann skoraði ellefu mörk. Alexander Petersson skoraði þrjú mörk, en Stefán Rafn Sigurmannsson komst ekki á blað.

Johan Jakobsson var markahæstur hjá Flensburg með sjö mörk, en hetjan Gottfridsson kom næstur með sex mörk.

Füchse Berlin og Magdeburg mætast svo í síðari undanúrslitaleiknum í dag og úrslitin fara svo fram á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×