Handbolti

Eisenach færist nær úrvalsdeildinni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bjarki Már er markahæsti leikmaður 2. deildarinnar með 254 mörk.
Bjarki Már er markahæsti leikmaður 2. deildarinnar með 254 mörk. mynd/facebook-síða eisenach
Eisenach steig í kvöld stórt skref í átt að þýsku úrvalsdeildinni í handbolta með öruggum sigri á Bad Schwartau í 2. deildinni í kvöld. Lokatölur 34-23, Eisenach í vil.

Bjarki Már Elísson var markahæstur í liði Eisenach með 10 mörk úr aðeins tólf skotum. Hannes Jón Jónsson gerði tvö mörk fyrir Eisenach og gaf auk þess fimm stoðsendingar á félaga sína.

Þetta var þriðji sigur Eisenach í röð og sá ellefti í síðustu tólf leikjum.

Liðið er nú með 50 stig í 2. sæti deildarinnar en þrjú efstu liðin komast upp í úrvalsdeildina. Eisenach á eftir að leika þrjá leiki í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×