Körfubolti

Karlalandsliðið í körfubolta klárt fyrir Smáþjóðaleikana

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Anton Brink
Craig Pedersen, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, hefur valið tólf manna hóp fyrir Smáþjóðaleikana sem fara fram á Íslandi og hefjast í næstu viku.

Fimm fastamenn frá því í Evrópuævintýrinu í fyrra verða ekki með á leikunum en Ísland tryggði sér þá sæti í úrslitakeppni EM í fyrsta sinn í sögunni.

Jón Arnór Stefánsson er upptekinn með Unicaja Malaga í úrslitakeppninni á Spáni og þeir Haukur Helgi Pálsson, Hörður Axel Vilhjálmsson og Pavel Ermolinskij eru meiddir. Sigurður Gunnar Þorsteinsson kemst síðan ekki í tólf manna hópinn en hann var með liðinu í fyrrahaust.

Fyrirliðinn Hlynur Bæringsson er með og þá mun Jakob Örn Sigurðarson spila á Smáþjóðaleikunum sína fyrstu landsleiki frá því 2013.

Logi Gunnarsson er leikjahæstur landsliðsmannanna en hann hefur spilað 105 leiki með A-landsliðinu.

Einn nýlið er í hópnum að þessu sinni en það er KR-ingurinn Kristófer Acox sem spilar þessa dagan með Furman-háskólaliðinu í Bandaríkjunum.

New York strákarnir Martin Hermannsson og Elvar Már Friðriksson eru báðir með íslenska liðinu en Elvar Már hefur reyndar ákveðið að skipta um skóla fyrir næsta vetur.



Landslið karla á Smáþjóðaleikunum 2015 verður skipað eftirtöldum leikmönnum:

Axel Kárason, Værlöse, Danmörku

Framherji · f. 1983 · 192 cm · 34 landsleikir

Brynjar Þór Björnsson, KR

Bakvörður f. 1988 · 192 cm · 39 landsleikir

Elvar Már Friðriksson, LIU University

Bakvörður · f. 1994 · 182 cm · 8 landsleikir

Helgi Már Magnússon, KR

Framherji · f. 1992 · 192 cm · 80 landsleikir

Hlynur Bæringsson, Sundsvall Dragons, Svíþjóð

Miðherji · 1982 · 200 cm · 79 landsleikir

Jakob Örn Sigurðarson, Sundsvall Dragons, Svíþjóð

Bakvörður f. 1982 · 190 cm · 67 landsleikir

Kristófer Acox – Furman University

Framherji · f. 1993 · 196 cm · Nýliði

Logi Gunnarsson,  Njarðvík

Bakvörður f. 1981 · 192 cm · 105 landsleikir

Martin Hermannsson, LIU University

Bakvörður · f. 1994 · 190 cm · 19 landsleikir

Ragnar Ágúst Nathanaelsson, Sundsvall Dragons, Svíþjóð

Miðherji · f. 1991 · 218 cm · 19 landsleikir

Sigurður Ágúst Þorvaldssonm Snæfell

Framherji · f. 1980 · 202 cm · 53 landsleikir

Ægir Þór Steinarsson, Sundsvall Dragons, Svíþjóð

Bakvörður · f. 1991 · 182 cm · 17 landsleikir

Þjálfari liðsins er Craig Pedersen.

Aðstoðarþjálfarar eru Arnar Guðjónsson og Finnur Freyr Stefánsson.

Þeir sem æfa ennþá með liðinu í kringum leikana

Ólafur Ólafsson, Grindavík

Hörður Axel Vilhjálmsson, Mitteldeutscher BC, Þýskaland (meiddur)

Pétur Rúnar Birgisson, Tindastóll

Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Solna Vikings, Svíþjóð

Aðrir leikmenn sem voru í æfingahóp

Dagur Kár Jónsson, Stjarnan

Darri Hilmarsson,  KR

Emil Barja, Haukar

Finnur Atli Magnússon, KR

Grétar Ingi Erlendsson, Þór Þorlákshöfn

Haukur Helgi Pálsson, LF Basket, Svíþjóð (meiddur)

Jón Axel Guðmundsson, Grindavík

Jón Arnór Stefánsson, Unicaja Malaga, Spánn (ennþá að spila með félagsliði)

Matthías Orri Sigurðarson, ÍR (meiddur)

Pavel Ermolinskij, KR (meiddur)

Sveinbjörn Claessen, ÍR

Tómas Heiðar Tómasson, Þór Þ.

Tryggvi Snær Hlinason, Þór Akureyri






Fleiri fréttir

Sjá meira


×