Körfubolti

Hoiberg er nýr þjálfari Bulls

Hoiberg á blaðamannafundinum.
Hoiberg á blaðamannafundinum. vísir/getty
Eins og búist var við ákvað Chicago Bulls að ráða Fred Hoiberg sem næsta þjálfara félagsins.

Hann tekur við liðinu af Tom Thibodeau sem var rekinn á dögunum. Hoiberg kemur til félagsins frá Iowa State-háskólanum. Hann er 19. þjálfarinn í sögu Bulls.

„Ég elska þennan hóp og fjölbreytni leikmanna. Við getum boðið upp á svo margt. Thibodeau er frábær þjálfari og ég vonast til þess að byggja ofan á grunninn sem hann bjó til," sagði Hoiberg.

Hoiberg vann 115 leiki með Iowa State og tapaði 56 leikjum. Hann fór með liðið fjórum sinnum í röð í NCAA-mótið.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×