Körfubolti

Fór frekar til Kína en í háskólaboltann

Emmanuel Mudiay.
Emmanuel Mudiay. vísir/getty
Emmanuel Mudiay er ekki með sama bakgrunn og aðrir í NBA-nýliðavalinu. Þegar hann lauk framhaldsskóla fór hann til Kína að spila körfubolta frekar en að fara í háskólaboltann eins og allir gera.

Það voru áhöld um hvort hann væri löglegur í háskólaboltanum á sinum tíma. Mudiay nennti ekki að bíða eftir því og dreif sig frekar til Kína.

Nú er hann kominn til baka 19 ára gamall og vill spila í NBA-deildinni. Hann var algjörlega óskrifað blað er hann mætti til æfinga fyrir valið en þar hefur hann vakið óskipta athygli.

Þeir sem hafa séð hann spá því að hann fari snemma í nýliðavalinu sem er fer fram eftir þrjár vikur.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×