Körfubolti

Dagbjört samdi við Val | Guðbjörg áfram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dagbjört og Guðbjörg með þjálfaranum Ara Gunnarssyni.
Dagbjört og Guðbjörg með þjálfaranum Ara Gunnarssyni. Mynd/Valur
Valur hefur gengið frá samningi við Dagbjörtu Skúladóttur, 22 ára framherja, sem kemur til liðsins frá Haukum. Hún gerði tveggja ára samning við Val.

Þá hefur Valur einnig gengið frá því að Guðbjörg Sverrisdóttir spili áfram með liðinu næstu tvö árin en hún hefur verið í Val undanfarin fjögur ár.

Guðbjörg er 22 ára bakvörður og er í íslenska landsliðinu. Hún skoraði ellefu stig að meðaltali í leik á síðustu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×