Körfubolti

Bulls kallar á Toni Kukoc

Kukoc í leik með Bulls.
Kukoc í leik með Bulls. vísir/getty
Króatinn Toni Kukoc er kominn aftur til félagsins þar sem hann vann þrjá NBA-meistaratitla.

Króatinn Toni Kukoc setti sinn svip á NBA-deildina á sínum tíma og var meðal bestu manna Chicago Bulls sem vann þrjá titla er Kukoc spilaði með liðinu.

Hann var valinn besti sjötti maður deildarinnar árið 1996 og skilaði heldur betur sínu til félagsins.

Nú er félagið búið að kalla á hann og ráða í vinnu. Hann er sérstakur ráðgjafi forseta félagsins.

Kukoc segir það vera afar spennandi og ekki síst mikill heiður að hafa verið ráðinn í vinnu hjá Bulls á nýjan leik.

Hann spilaði í deildinni í þrettán ár og þar af var hann í sjö ár í Chicago. Hann er önnur goðsögnin sem fær slíka vinnu hjá félaginu en Scottie Pippen fékk svipaða stöðu árið 2012.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×