Körfubolti

Klay Thompson getur skotið hvaðan sem er | Myndband

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Splash-bræðurnir Klay og Steph.
Splash-bræðurnir Klay og Steph. Vísir/Getty
Klay Thompson, nýkrýndur NBA-meistari með Golden State Warriors, sýndi á Instagram-síðu sinni í dag hvers hann er megnugur með körfuboltann er hann hitti úr skoti á reiðhjóli.

Thompson sem var mikilvægur hluti í liði Golden State Warriors en hann ásamt bakvarðabróðir sínum, Stephen Curry, skaut flest lið deildarinnar í kaf í deildarkeppninni. Tókst honum ekki að hafa leika það eftir í úrslitakeppninni en hann átti þó fína spretti inn á milli.

Hann virðist njóta lífsins þessa dagana en hann ásamt bróðir sínum var að leika sér í körfuboltasal á dögunum og ákvað að reyna skot frá miðjunni með annarri hendi sem fór beinustu leið ofan í körfuna, allt þetta á meðan hann sat á reiðhjóli og hjólaði meðfram vellinum.

Myndband af skoti Klay má sjá hér fyrir neðan.

Working on being more versatile this offseason S/o to @ttwersky for the dime in the shooting pocket

A video posted by Klay Thompson (@klaythompson) on

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×